Kósovó
Kosovë / Kosova (albanska) Косово (serbneska) | |
![]() |
![]() |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: ekkert | |
![]() | |
Höfuðborg | Pristína |
Opinbert tungumál | albanska og serbneska |
Stjórnarfar | Lýðveldi
|
Fulltrúi S.þ. Forseti Forsætisráðherra |
Joachim Rücker Fatmir Sejdiu Hashim Thaçi |
Sjálfstæði | |
• Yfirlýst | 17. febrúar 2008 |
Flatarmál • Samtals |
10.908 km² |
Mannfjöldi • Samtals (2005) • Þéttleiki byggðar |
-. sæti 2.200.000 220/km² |
VLF (KMJ) | áætl. ? |
• Samtals | ? millj. dala (?. sæti) |
• Á mann | ? dalir (?. sæti) |
Gjaldmiðill | Evra € ² |
Tímabelti | UTC+1 (UTC+2 á sumrin) |
Þjóðarlén | .rs |
Landsnúmer | ++381 |
Kosóvó er land á Balkanskaga í suðaustur Evrópu. Það á landamæri að Serbíu, Svartfjallalandi, Albaníu og Makedóníu. Landið lýsti yfir sjálfstæði undan Serbíu 17. febrúar 2008 en hafði þá aðeins verið hluti af Serbíu að nafninu til síðan í Kosóvóstríðinu 1999 en eftir það tóku Sameinuðu þjóðirnar við stjórn þess. Sjálfstæðisyfirlýsingin var mjög í óþökk Serba sem líta eftir sem áður á Kosóvó sem hluta af Serbíu. Þær þjóðir sem eru meðlimir í sameinuðu þjóðunum skiptast í tvo nokkurn veginn jafn stórar fylkingar hvað þetta varðar: 90 meðlimsríki viðurkenna fullveldi Kosóvó en 93 meðlimsríki líta á Kosóvo sem hluta Serbíu.
Íbúar Kosóvó eru rúmar tvær milljónir, þar af eru langflestir Albanir en einnig eru þar Serbar, Tyrkir, Bosníumenn og Sígaunar. Pristína er höfuðborg landsins og stærsta borg þess.