Fara í innihald

Síbería

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 4. mars 2019 kl. 17:12 eftir Dagvidur (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. mars 2019 kl. 17:12 eftir Dagvidur (spjall | framlög) (Tengill lagaður)
Síberíuhluti Rússlands sýndur með dekkri rauðum lit. Dökkrauði liturinn merkir rússneska sambandssvæðið Síberíu.

Síbería eða Síbiría (rússneska: Сиби́рь, Sibir) er víðáttumikið landflæmi sem nær yfir allan austur- og norðausturhluta Rússneska sambandsríkisins. Síbería er í Norður-Asíu sem markast af Úralfjöllum í vestri að Kyrrahafinu í austri, og frá Norður-Íshafinu í norðri að landamærum Kasakstans, Mongólíu og Kína í suðri. Síbería nær yfir 77% af flatarmáli Rússlands en hýsir eingöngu 27% af íbúafjölda landsins (39 milljónir).

Landafræði

Síbería nær yfir nær alla Norður-Asíu frá Úralfjöllum í vestri að Kyrrahafinu í austri, og frá Norður-Íshafinu í norðri að hæðunum í norðvesturhluta Kasakstans og landamærum Rússlands við Mongólíu og Kína í suðri. Síbería nær 13,1 milljón ferkólómetra.

Vesturhluti Síberíu er votlendi, skógi vaxin slétta, austurhlutinn er háslétta, sundurskorin af miklum árdölum og girt fjallgörðum. Nyrst er túndra.

Meginlandsloftslag ríkir að mestu í Síberíu. Fimbulkuldi í norðri en lítil og stopul úrkoma í suðri. Veðráttan rýrir möguleika til landbúnaðar. Atvinnuþróun hefur einkum byggist á miklum auðlindum, aðallega olíu, gasi, kolum, járngrýti, gulli og timbri.

Um 155.000 vatnsföll eru í Síberíu. Þau stærstu eru Ob, Jenísej og Lena.

Til að bæta samgöngur hefur verið unnið að lagningu járnbrauta. Bjakal-Amúr járnbrautin) og gerð nýrra skipaskurða.

Saga

Rússar lögðu undir sig Síberíu 1580- 1680 en þar bjuggu þá einkum þjóðflokkar hirðingja og veiðimanna. Allt frá 1593 voru afbrotamenn fluttir þangað en frá 18. öld aðallega pólitískir fangar.

Málmvinnsla hófst í Síberíu á 18. öld. en einnig fengust þaðan verðmæt loðskinn.

Rússar voru hvattir til landnáms, einkum eftir að byrjað var á lagningu Síberíujárnbrautarinnar árið 1892 og er nú er allur þorri íbúa Síberíu rússneskum uppruna. Á stjórnarárum Stalíns hófst mikil iðnvæðing Síberíu sem byggði að miklu leyti á þrælavinnu, enda voru milljónir manna fluttir í fangabúðir Síberíu.


  Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.