Fara í innihald

Leifur heppni

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 24. nóvember 2010 kl. 18:07 eftir Luckas-bot (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. nóvember 2010 kl. 18:07 eftir Luckas-bot (spjall | framlög) ([r2.5.2] robot Bæti við: hy:Լեյֆ Էրիքսոն)
Leifur heppni Eiríksson
Leifur heppni finnur Vínland. Mynd eftir Christian Krohg, 1893.
Fæddur
Leifur Eiríksson

Um 980
DáinnUm 1020
Þekktur fyrirSamkvæmt Eiríks sögu rauða var hann fyrsti Evrópumaðurinn sem kom til meginlands Norður Ameríku
TrúKristni
ForeldrarEiríkur rauði Þorvaldsson, Þjóðhildur Jörundardóttir
Kort af siglingaleið Leifs heppna til Nýfundnalands.

Leifur heppni Eiríksson (um 980 — um 1020) var landkönnuður sem er sagður hafa komið til Norður-Ameríku fyrstur Evrópubúa.

Talið er að Leifur hafi fæðst um árið 980 á Íslandi, sonur Eiríks rauða Þorvaldssonar og Þjóðhildar konu hans. Hann flutti með foreldrum sínum til Grænlands ungur að árum, ásamt bræðrum sínum, Þorvaldi og Þorsteini.

Í Grænlendinga sögu segir frá því að Leifur keypti skip Bjarna Herjólfssonar sem hafði áður villst til Norður-Ameríku, en steig ekki á land.

Um árið 1000 sigldi Leifur frá Grænlandi og kom fyrst að Hellulandi (líklega Baffinsland). Hann sigldi því næst sunnar og kemur nú að skógi vöxnu landi (Marklandi), líklega Labrador. Að lokum er talið að hann hafi komið til Nýfundnalands. Leifur nefndi það Vínland eftir að hann fann þar vínber. Einnig voru þar ár fullar af fiski og grasið grænt árið um kring. Á Vínlandi byggðu Leifur og fylgismenn hans nokkur hús og höfðust við yfir veturinn.

Á heimleiðinni til Grænlands bjargaði Leifur 15 skipsbrotsmönnum af skeri og fékk upp úr því nafngiftina ‚hinn heppni‘.

Tenglar

Snið:Tengill ÚG