Arafurahaf
Útlit
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/c1/Arafura_Sea_map.png/220px-Arafura_Sea_map.png)
Arafurahaf er hafsvæði í Kyrrahafi yfir landgrunni Ástralíu milli Ástralíu og indónesíska hluta Nýju Gíneu. Arafurahaf tengist Kóralhafi um Torressund í vestri og Tímorhafi í austri. Í norðvestri mætir það Bandahafi við Litlu-Sundaeyjar. Í suðri er Carpentaria-flói.
Arafurahaf er grunnt hitabeltishaf (aðeins um 50-80 metra djúpt að jafnaði) þar sem margir fellibylir verða til. Arafurahaf liggur yfir hluta Sahulgrunns sem tengir Ástralíu, Nýju Gíneu og austurhluta Litlu-Sundaeyja.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Arafurahafi.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/bd/Wiktionary-logo-is.png/35px-Wiktionary-logo-is.png)
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Arafurahaf.